We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Silkimj​ú​k er syndin

by jón Tryggvi

/
  • Streaming + Download

    Immediate download of 12-track album in your choice of 320k mp3, FLAC, or just about any other format you could possibly desire.
    Purchasable with gift card

      $10 USD  or more

     

1.
Orðaflaumur 03:13
Orðaflaumur eyrum lemur í gegnum tíð og menn en hljóðið sem að tungan temur hefur ekkert sannað enn Draumasmiður lofðu mér að ræta þína drauma í þeim sem hafa tapað sér og finna sér enga tauma veistu hvað þú ert í raun veistu hvað þú getur gefið veistu hvað lífið fjallar um Lífið fjallar um ástina sem þú gefur ekki einn um kærleikann og sáttina sem þú lifir ekki einn ef lífið er fljóð sem þig rekur í og straumur þess þungur sem blý ekki spyrna þér í mót þá missiru af því Þú er lífs þíns lista maður leiktu þér að því Peningar eru ekki penslar þínir hefuru pælt í því Orðaflaumur eyrun lemur í gegnum tíð og menn en hljóðið sem að tungan temur hefur ekkert sannað enn
2.
Reykur kyssir rjáfrið og askan brotnar á gólfið og hugur minn ferðast til þín og hugur minn ferðarst til þín gulir fingur á streng þrýsta á nýheitt stálið verma þessum dreng hugurinn kyndir bálið og að geta svona kysst og að geta svona kysst geta aðeins þeir er hafa misst geta aðeins þeir er hafa misst en nú er glasið fullt og gylltur mjöður rennur og slekkur allt sem brennur og slekkur allt sem brennur
3.
það var stúlka sem dansaði dansaði skugganum á hún vildi öllum gefa alla sína þrá en enginn vildi þiggja það sem hver maður á svo stúlkan sem dansaði dansaði skugganum á það var eittsinn drengur sem bar heim á öxlum sér ó mikil ósköp hvað hann vorkenndi sér sama hvað hver sagði hann vildi ekki sjá þess heldur batt hann fast heiminn bakið á en stúlkan í skugganum hitti drenginn á drengurinn þáði loks alla hennar þrá hann vildi við sig bæta byrði bakið á í skugganum kviknaði hinsvegar glæný þrá...
4.
Í draumi sérhvers manns í draumi sérhvers manns er fall hans falið þú ferðast gegnum dimman kynjaskóg af blekkingum sem brjóst þitt hefur alið á bak við veruleikans köldu ró þinn draumur býr þeim mikla mætti yfir að mynda sjalfstætt líf, sem ógnar þér hann vex á milli þín og þess sem lifir og þó er engum ljós, hvað milli ber gegn þinni líkamsorku og andans mætti og öndvert þinni skoðun, reynslu og trú, í dimmri þröng, með dularfullum hætti rís draumsins bákn og jafnframt minnkar þú og sjá, þú fellur fyrir draumi þínum í fullkominni uppgjöf sigraðs manns hann lykur um þig löngum armi sínum, og loksinns ert þú sjálfur draumur hanns
5.
Silki (free) 04:53
Silki Silki mjúk er syndin með djöfullegann munn og rödd sem hvítir englar strjúka af svörtum fiðlustreng og röddin hvíslar að þér þú ert að missa allt en býðst þér til að hjálpa telur það ekki kosta neitt er það ótti við að missa sem fær þig til að kyssa er það ótti við að vera aðeins bara þú er það ótti við að missa sem fær þig til að kyssa silki mjúka synd silki mjúka synd og silki mjúka syndin teimir þig af leið í gegnum gnægtir allar sem þú áttir alltaf til og hún kennir þér að muna með hörðum undirtón með sitt djöfullega bros að núna á hún þig er það ótti við að vera aðeins bara þú að einhver kunni að dæma þig í falskri trú en dómarinn ert þú en dómarinn ert þú er það ótti við að missa sem fær þig til að kyssa silki mjúka synd (silki mjúka synd)
6.
þú dauðan lepur úr þjáningu þinni eigin hugarsmíð sem líf þitt tekur blæðir út hugsunum skoðunum og dómum og veltir þér svo duglega uppúr þeim öllum reiðist og bölvar, ragnarök inní þér myrðir og nauðgar en brosir útávið þetta er þinn máttur og sálarlíf dauðann þú hrekur uns hann þarf að hefna sín felur þig í myrkri með kokteil í blóði þetta er ekki einstigi heldur greiðfær slóði svo heldur þú hleranum fyrir heimisnns syndarflóði þetta er uppskriftin af gröf þinni vinur minn...(góði)
7.
Uppskriftin II uppskriftin af gröf var gefin þér til handa en hlustið nú það er til lausn sem nokkrir fylgja í andans hugarró ég bið þig ljúft að leggja til hliðar skoðun, dóm og vitið þitt það er víst það sem hönd þína tekur og lykur um glasið sitt það eru skref sem þarf að taka til að virkja aftur samband þitt við æðri mátt sem þú mátt skilja á þann hátt sem blasir við þú kannt það eitt að vilja vita að flaskan hefur völdin þín en annað þarf víst líka að skilja að völdin verða aldrei þín og ef þú vandar til verka þinna þá þarftu ekki að berjast meir því lífið allt er komið á milli glassins barms og huga þér
8.
Hræsnarinn 04:20
Kaldur er andvarinn í köldum janúar þá vitjar mín dauðinn og krefur mig um svar fyrir syndir manna og hatur í eigin garð hví þeir trú banna og skilja löndin að mér fallast hendur ég á engin orð skil ekki heldur hví við fremjum þjóðarmorð börn með brotin gullin sín gráta í þykkri þögn hvar þau geima tárin sín finnst hvergi í neinni sögn hið eina sem að þeim er sýnt er hvernig eigi að slá sakleysið rofið rifið týnt barið nítt í augun blá kaldur er andvarinn í dimmum þokusal myrkur fellur skuggi minn í dauðanns dýpsta dal þrífast þar syndir og heimskar manna tal berjast þeir blyndir um eigið sálar sal þarna er ég mættur á þessa myrku slóð hélt ég væri hættur að sötra hræsnarans blóð
9.
Háttur og höfuðstafur Þú ert háttur og höfuðstafur ástæða mín til að binda þjakaður ást mína í rím ég er myrkur máni en fagurt skin er mundar ljósi á okkar kyn við erum skáld er vinja leita í hugans eyðimörk en hamingjuna þreita á þunnri pappírs örk hún er blik í lofti skuggi af daufi lykt er skáldið sat og orti með hjartað sárt og tryllt hann er ég, skáld eða drengur með rómantískan hug kannski enginn fengur ég set mitt traust á guð það er tilfinning um létti tilfinning um ást orð sem guð þinn setti svo þú þyrftir ekki að þjást
10.
Óráð 02:26
Ah, ah - nú sofna eg, fyrst svona er dauðahljótt; svo hitti eg í draumi, drottninguna, í nótt. Þá gef eg henni kórónu úr klaka á höfuð sér. Hún skal fá að dansa eins og drottningu ber. Svo gef eg henni svarta slæðu að sveipa um líkamann, svo enginn geti séð, að eg svívirti hann. Svo rjóða eg á brjóst hennar úr blóði mínu kross, og kyssi hana í Jesúnafni Júdasarkoss. Svo gef eg henni helskó, hitaða á rist, og bind um hvíta hálsinn bleikan þyrnikvist. Svo dönsum við og dönsum og drekkum eitrað vín. ... Eg verð konungur djöflanna, hún drottningin mín.
11.
Til Unnar 04:26
sem víbrandi strokinn strengur seittlarðu um mig sam alda við mínar strendur snertir þú mig þú er minn einasti eldur sem þíðir mig það ert þú sem því veldur að ég hringsnýst um mig bamm bamm bamm bamm ú´úúú jeee baramm baramm je je je jeheee þessi eineygi drengur hugsar bara um þig hann vill lengur og lengur koma við þig í mér býr fangaður eldur sem kallar á þig ég get ekki stundinni lengur hamið mig við þig bamm bamm bamm bamm ú´úúú jeee baramm baramm je je je jeheee
12.
þytur svartra vængja þeyta sögu systra fimm án leikja um brotin draum og falið tár sjálfið rofið eitt flakandi sár og við lokum augunum snúum okkur frá brosum kallt í aðra átt það fær mig ekkert á nema saga systra fimm án leikja sem allir þekktu en kusu að þegja ættli þögnin nokkrum þjóni þegar myrkur hugur tekur lítil fræ svo honum ljómi an lambsinns anda hrekur en úr stó er risinn ari og kallar hátt hún bíður eftir svari þeirra er litu í aðra átt

credits

released December 1, 2009

license

all rights reserved

tags

about

jón Tryggvi Iceland

contact / help

Contact jón Tryggvi

Streaming and
Download help

Shipping and returns

Redeem code

Report this album or account

If you like jón Tryggvi, you may also like: