1. |
Orðaflaumur
03:13
|
|||
Orðaflaumur eyrum lemur
í gegnum tíð og menn
en hljóðið sem að tungan temur
hefur ekkert sannað enn
Draumasmiður lofðu mér
að ræta þína drauma
í þeim sem hafa tapað sér
og finna sér enga tauma
veistu hvað þú ert í raun
veistu hvað þú getur gefið
veistu hvað lífið fjallar um
Lífið fjallar um ástina
sem þú gefur ekki einn
um kærleikann og sáttina
sem þú lifir ekki einn
ef lífið er fljóð sem þig rekur í
og straumur þess þungur sem blý
ekki spyrna þér í mót
þá missiru af því
Þú er lífs þíns lista maður
leiktu þér að því
Peningar eru ekki penslar þínir
hefuru pælt í því
Orðaflaumur eyrun lemur
í gegnum tíð og menn
en hljóðið sem að tungan temur
hefur ekkert sannað enn
|
||||
2. |
||||
Reykur kyssir rjáfrið
og askan brotnar á gólfið
og hugur minn ferðast til þín
og hugur minn ferðarst til þín
gulir fingur á streng
þrýsta á nýheitt stálið
verma þessum dreng
hugurinn kyndir bálið
og að geta svona kysst
og að geta svona kysst
geta aðeins þeir er hafa misst
geta aðeins þeir er hafa misst
en nú er glasið fullt
og gylltur mjöður rennur
og slekkur allt sem brennur
og slekkur allt sem brennur
|
||||
3. |
Stúlkan í Skugganum
03:47
|
|||
það var stúlka sem dansaði
dansaði skugganum á
hún vildi öllum gefa
alla sína þrá
en enginn vildi þiggja
það sem hver maður á
svo stúlkan sem dansaði
dansaði skugganum á
það var eittsinn drengur
sem bar heim á öxlum sér
ó mikil ósköp
hvað hann vorkenndi sér
sama hvað hver sagði
hann vildi ekki sjá
þess heldur batt hann fast
heiminn bakið á
en stúlkan í skugganum
hitti drenginn á
drengurinn þáði loks
alla hennar þrá
hann vildi við sig bæta
byrði bakið á
í skugganum kviknaði
hinsvegar glæný þrá...
|
||||
4. |
Í draumi sérhvers manns
04:45
|
|||
Í draumi sérhvers manns
í draumi sérhvers manns er fall hans falið
þú ferðast gegnum dimman kynjaskóg
af blekkingum sem brjóst þitt hefur alið
á bak við veruleikans köldu ró
þinn draumur býr þeim mikla mætti yfir
að mynda sjalfstætt líf, sem ógnar þér
hann vex á milli þín og þess sem lifir
og þó er engum ljós, hvað milli ber
gegn þinni líkamsorku og andans mætti
og öndvert þinni skoðun, reynslu og trú,
í dimmri þröng, með dularfullum hætti
rís draumsins bákn og jafnframt minnkar þú
og sjá, þú fellur fyrir draumi þínum
í fullkominni uppgjöf sigraðs manns
hann lykur um þig löngum armi sínum,
og loksinns ert þú sjálfur draumur hanns
|
||||
5. |
||||
Silki
Silki mjúk er syndin
með djöfullegann munn
og rödd sem hvítir englar
strjúka af svörtum fiðlustreng
og röddin hvíslar að þér
þú ert að missa allt
en býðst þér til að hjálpa
telur það ekki kosta neitt
er það ótti við að missa
sem fær þig til að kyssa
er það ótti við að vera
aðeins bara þú
er það ótti við að missa
sem fær þig til að kyssa
silki mjúka synd
silki mjúka synd
og silki mjúka syndin
teimir þig af leið
í gegnum gnægtir allar
sem þú áttir alltaf til
og hún kennir þér að muna
með hörðum undirtón
með sitt djöfullega bros
að núna á hún þig
er það ótti við að vera
aðeins bara þú
að einhver kunni að dæma
þig í falskri trú
en dómarinn ert þú
en dómarinn ert þú
er það ótti við að missa
sem fær þig til að kyssa
silki mjúka synd
(silki mjúka synd)
|
||||
6. |
Uppskriftin I
03:18
|
|||
þú dauðan lepur úr þjáningu þinni
eigin hugarsmíð sem líf þitt tekur
blæðir út hugsunum skoðunum og dómum
og veltir þér svo duglega uppúr þeim öllum
reiðist og bölvar, ragnarök inní þér
myrðir og nauðgar en brosir útávið
þetta er þinn máttur og sálarlíf
dauðann þú hrekur uns hann þarf að hefna sín
felur þig í myrkri með kokteil í blóði
þetta er ekki einstigi heldur greiðfær slóði
svo heldur þú hleranum fyrir heimisnns syndarflóði
þetta er uppskriftin af gröf þinni vinur minn...(góði)
|
||||
7. |
Uppskriftin II
04:00
|
|||
Uppskriftin II
uppskriftin af gröf var gefin
þér til handa en hlustið nú
það er til lausn sem nokkrir fylgja
í andans hugarró
ég bið þig ljúft að leggja til hliðar
skoðun, dóm og vitið þitt
það er víst það sem hönd þína tekur
og lykur um glasið sitt
það eru skref sem þarf að taka
til að virkja aftur samband þitt
við æðri mátt sem þú mátt skilja
á þann hátt sem blasir við
þú kannt það eitt að vilja vita
að flaskan hefur völdin þín
en annað þarf víst líka að skilja
að völdin verða aldrei þín
og ef þú vandar til verka þinna
þá þarftu ekki að berjast meir
því lífið allt er komið á milli
glassins barms og huga þér
|
||||
8. |
Hræsnarinn
04:20
|
|||
Kaldur er andvarinn
í köldum janúar
þá vitjar mín dauðinn
og krefur mig um svar
fyrir syndir manna
og hatur í eigin garð
hví þeir trú banna
og skilja löndin að
mér fallast hendur
ég á engin orð
skil ekki heldur
hví við fremjum þjóðarmorð
börn með brotin gullin sín
gráta í þykkri þögn
hvar þau geima tárin sín
finnst hvergi í neinni sögn
hið eina sem að þeim er sýnt
er hvernig eigi að slá
sakleysið rofið rifið týnt
barið nítt í augun blá
kaldur er andvarinn
í dimmum þokusal
myrkur fellur skuggi minn
í dauðanns dýpsta dal
þrífast þar syndir
og heimskar manna tal
berjast þeir blyndir
um eigið sálar sal
þarna er ég mættur
á þessa myrku slóð
hélt ég væri hættur
að sötra hræsnarans blóð
|
||||
9. |
Háttur og höfuðstafur
02:39
|
|||
Háttur og höfuðstafur
Þú ert háttur og höfuðstafur
ástæða mín
til að binda þjakaður
ást mína í rím
ég er myrkur máni
en fagurt skin
er mundar ljósi
á okkar kyn
við erum skáld er vinja leita
í hugans eyðimörk
en hamingjuna þreita
á þunnri pappírs örk
hún er blik í lofti
skuggi af daufi lykt
er skáldið sat og orti
með hjartað sárt og tryllt
hann er ég, skáld eða drengur
með rómantískan hug
kannski enginn fengur
ég set mitt traust á guð
það er tilfinning um létti
tilfinning um ást
orð sem guð þinn setti
svo þú þyrftir ekki að þjást
|
||||
10. |
Óráð
02:26
|
|||
Ah, ah - nú sofna eg,
fyrst svona er dauðahljótt;
svo hitti eg í draumi,
drottninguna, í nótt.
Þá gef eg henni kórónu
úr klaka á höfuð sér.
Hún skal fá að dansa
eins og drottningu ber.
Svo gef eg henni svarta slæðu
að sveipa um líkamann,
svo enginn geti séð,
að eg svívirti hann.
Svo rjóða eg á brjóst hennar
úr blóði mínu kross,
og kyssi hana í Jesúnafni
Júdasarkoss.
Svo gef eg henni helskó,
hitaða á rist,
og bind um hvíta hálsinn
bleikan þyrnikvist.
Svo dönsum við og dönsum
og drekkum eitrað vín.
... Eg verð konungur djöflanna,
hún drottningin mín.
|
||||
11. |
Til Unnar
04:26
|
|||
sem víbrandi strokinn strengur
seittlarðu um mig
sam alda við mínar strendur
snertir þú mig
þú er minn einasti eldur
sem þíðir mig
það ert þú sem því veldur
að ég hringsnýst um mig
bamm bamm bamm bamm ú´úúú jeee baramm baramm je je je jeheee
þessi eineygi drengur
hugsar bara um þig
hann vill lengur og lengur
koma við þig
í mér býr fangaður eldur
sem kallar á þig
ég get ekki stundinni lengur
hamið mig við þig
bamm bamm bamm bamm ú´úúú jeee baramm baramm je je je jeheee
|
||||
12. |
Svartir Vængir
03:16
|
|||
þytur svartra vængja þeyta
sögu systra fimm án leikja
um brotin draum og falið tár
sjálfið rofið eitt flakandi sár
og við lokum augunum
snúum okkur frá
brosum kallt í aðra átt
það fær mig ekkert á
nema saga systra fimm án leikja
sem allir þekktu en kusu að þegja
ættli þögnin nokkrum þjóni
þegar myrkur hugur tekur
lítil fræ svo honum ljómi
an lambsinns anda hrekur
en úr stó er risinn ari
og kallar hátt
hún bíður eftir svari
þeirra er litu í aðra átt
|
If you like jón Tryggvi, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp